Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

18.03.2016

Veggspjald með leiðbeiningum vegna heilahristings

Veggspjald með leiðbeiningum vegna heilahristingsÁ undanförnum tveimur árum hefur ÍSÍ ásamt HR og KSÍ staðið fyrir málstofum um höfuðáverka þá aðallega heilahristing og mögulegar afleiðingar hans, með það að markmiði að auka þekkingu í íþróttasamfélaginu. Einn liður í því er að hafa aðgengilegar upplýsingar um málefnið á heimasíðu ÍSÍ,
Nánar ...
18.03.2016

Sædís Eiríksdóttir sæmd Silfurmerki ÍSÍ

Sædís Eiríksdóttir sæmd Silfurmerki ÍSÍ37. Héraðsþing Héraðssambandsins Hrafna-Flóka var haldið í Félagsheimilinu Birkimel á Barðaströnd þann 15.mars s.l. Vel var mætt og voru ýmis mál tekin fyrir. Mótaskrá sumarsins var samþykkt auk þess sem starf komandi árs var rætt. Miklar umræður sköpuðust um ástand íþróttamannvirkja á svæðum HHF en veðrið síðasta árið hefur valdið miklum skemmdum á þeim.
Nánar ...
17.03.2016

Dómarar á Ólympíuleikunum í Ríó

Dómarar á Ólympíuleikunum í RíóHandknattleikssamband Íslands fékk þær gleðifréttir fyrir stuttu að handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, eitt fremsta dómararpar landsins, hafi verið tilnefndir af Alþjóðahandknattleikssambandinu sem dómarar í handknattleik á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar.
Nánar ...
17.03.2016

Breytingar í stjórn HSK

Breytingar í stjórn HSKÁrsþing Héraðssambandsins Skarphéðins fór fram á Selfossi laugardaginn 12. mars síðastliðinn. Þinghaldið gekk vel og var góð mæting á þingið. Góðar umræður voru í nefndum og samþykkti þingið rúmlega 20 tillögur. Breytingar urðu á stjórn sambandsins. Örn Guðnason varaformaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Helgi S. Haraldsson kosinn varaformaður.
Nánar ...
17.03.2016

Gott ársþing UMSE

Gott ársþing UMSEUngmennasamband Eyjafjarðar hélt 95. ársþing sitt í Þelamerkurskóla miðvikudaginn 16. mars síðastliðinn. Þingið var starfsamt og málefnalegt í alla staði.
Nánar ...
14.03.2016

Meistaranám í Ólympíufræðum

Alþjóða Ólympíuakademían auglýsir eftir umsóknum í meistaranám námsárið 2016-2017 en námið ber titilinn „Ólympíufræði og –menntun, og skipulag og stjórnun Ólympíuverkefna“. Námið stendur yfir í þrjár annir og fara tvær annir fram í Grikklandi. Fyrri önnin í Grikklandi stendur yfir frá 15. september-18. nóvember en sú seinni frá 6. apríl- 11. júní 2017. Þriðju önnina má vinna í heimalandinu. Kennslan í Grikklandi fer fram í Ólympíu og í Spörtu.
Nánar ...
14.03.2016

Heiðranir á þingi USAH

Heiðranir á þingi USAH99. ársþing USAH fór fram um helgina og við það tækifæri var fráfarandi formaður sambandsins, Aðalbjörg ​Valdimarsdóttir sæmd Gullmerki ÍSÍ fyrir störf sín í þágu íþróttahreyfingarinnar. Hafdís Vilhjálmsdóttir fráfarandi varaformaður USAH og Valgerður Hilmarsdóttir fráfarandi gjaldkeri USAH voru sæmdar Silfurmerki ÍSÍ.
Nánar ...
14.03.2016

Rúnar Pétursson kjörinn formaður USAH

Rúnar Pétursson kjörinn formaður USAH99. ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga fór fram sunnudaginn 13. mars á Húnavöllum. Á þingið mættu 32 fulltrúar frá aðildarfélögunum. Þingið var nokkuð starfssamt og umræður all nokkrar. Fjórar tillögur lágu fyrir á þinginu sem allar voru samþykktar eftir breytingar í nefndum.
Nánar ...
14.03.2016

Nýr sambandsstjóri hjá UMSB

Nýr sambandsstjóri hjá UMSBLaugardaginn 12.mars sl. fór sambandsþing UMSB fram í félagsheimilinu Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit . Gestgjafi var Ungmenna- og íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar og stóðu þau vaktina af mikilli prýði. Þingið var vel sótt og gekk vel, undir öflugri stjórn þingforsetanna Pálma Ingólfssonar og Kristjáns Gíslasonar.
Nánar ...
14.03.2016

Gott ársþing UMSS

Gott ársþing UMSSUngmennasamband Skagafjarðar hélt 96. ársþing sitt í húsnæði veitingahússins Gott í gogginn á Sauðárkróki í boði Siglingaklúbbsins Drangeyjar. Þingið var ágætlega sótt, alls voru 36 fulltrúar mættir af 58.
Nánar ...
13.03.2016

Framtíðarsýn og umhverfisstefna AKÍS samþykkt

Framtíðarsýn og umhverfisstefna AKÍS samþykktAkstursíþróttasamband Íslands hélt ársþing sitt í gær, laugardaginn 12. mars. Tryggvi M. Þórðarson var endurkjörinn formaður sambandsins. Helga Katrín Stefánsdóttir, Ragnar Róbertsson og Þórður Bragason sitja áfram í stjórn. Einar Gunnlaugsson, Jón Bjarni Jónsson og Sigurður Gunnar Sigurðsson buðu sig fram til tveggja ára og voru kjörin.
Nánar ...
13.03.2016

Afreksstefna HRÍ samþykkt á ársþingi

Afreksstefna HRÍ samþykkt á ársþingiFyrsta ársþing Hjólreiðasambands Íslands frá stofnfundi sambandsins í júní 2014 var haldið 7. mars í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingið var sett kl. 19.15. Alls sóttu þingið 15 fullrúar frá 7 aðildarfélögum. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri reikninga sambandsins.
Nánar ...