Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

29.05.2020

Fjarnámskeið um lyfjaeftirlit

Fjarnámskeið um lyfjaeftirlitFræðsla er lykillinn að öflugum forvörnum í lyfjamálum. Alþjóðalyfjaprófunarstofnunin (ITA) býður nú öllum þeim sem áhuga hafa á að fylgjast með fjarnámskeiðum sem snúa að lyfjamálum. Námskeiðunum er ætlað að veita íþróttafólki og þjálfurum þeirra yfirsýn yfir allt það sem viðkemur lyfjaeftirliti.
Nánar ...
28.05.2020

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna á morgun

Verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna á morgunÁ morgun, þann 29. maí, fer fram verðlaunaafhending Hjólað í vinnuna í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjaveg 6, E-sal á 3. hæð kl. 12:10 og eru allir velkomnir að mæta og fylgjast með. Verðlaun eru veitt fyrir þrjá efstu vinnustaðina í öllum flokkum fyrir hlutfall daga. Í kílómetrakeppninni eru þremur efstu liðunum veitt verðlaun fyrir annars vegar heildarfjölda kílómetra og hins vegar hlutfall kílómetra.
Nánar ...
28.05.2020

20 ára afmæli DSÍ

20 ára afmæli DSÍDansþing Dansíþróttasambands Íslands (DSÍ) 2020 var haldið 26. maí sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Sérsambandið fagnaði 20 ára afmæli innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) á þinginu en DSÍ var stofnað þann 18. maí árið 2000. Heimsfaraldurinn setti brag á þingið þar sem kjörmenn voru færri en áður. Samþykkt voru skýrsla stjórnar, reikningar, áætlanir og breytingar á lögum. Hafsteinn Pálsson annar varaforseti ÍSÍ var þingforseti.
Nánar ...
26.05.2020

Umsóknir vegna sértækra aðgerða

Umsóknir vegna sértækra aðgerðaÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) kallar nú eftir umsóknum frá íþrótta- og ungmennafélögum, íþróttahéruðum og sérsamböndum ÍSÍ sem hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna Covid-19. Er þar meðal annars verið að horfa til sérstakra viðburða, móta og keppnishalds sem ekki gat orðið vegna Covid-19.
Nánar ...
26.05.2020

Síðasti dagur Hjólað í vinnuna

Síðasti dagur Hjólað í vinnunaÍ dag er síðasti keppnisdagur Hjólað í vinnuna 2020. ÍSÍ hvetur alla til að klára keppnina með stæl og ekki síður að tileinka sér umhverfisvænan og hagkvæman ferðamáta áfram þó Hjólað í vinnuna verkefninu sé að ljúka.
Nánar ...
25.05.2020

IOC og WHO styrkja samstarfið

IOC og WHO styrkja samstarfiðAlþjóðaólympíunefndin (IOC) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hafa nú undirritað nýjan samning sem felur í sér samvinnu um heilbrigðari lífsstíl fólks í gegnum íþróttir. Samninginn undirrituðu Thomas Bach forseti IOC og Dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus framkvæmdastjóri WHO þann 16. maí sl. í höfuðstöðvum WHO í Genf. Bach sagði við tilefnið að mikilvægi íþrótta og líkamsræktar fyrir andlega og líkamlega heilsu hafi orðið enn ljósara síðastliðna mánuði á tímum kórónaveirunnar.
Nánar ...
22.05.2020

Glæsilegur nýr Kvennahlaupsbolur

Glæsilegur nýr KvennahlaupsbolurNýr og endurhugsaður Kvennahlaupsbolur var afhjúpaður með viðhöfn í dag, 22. maí. Bolurinn er tákn nýrra tíma, hugsaður frá grunni og slær tóninn fyrir nýja hugsun. Miðasala fyrir hlaupið sem og forsala bola er hafin á www.tix.is.
Nánar ...
22.05.2020

Íþróttaiðkun án takmarkana

Íþróttaiðkun án takmarkanaNú rétt í þessu birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum, skv. nýju auglýsingunni, tekur gildi 25. maí nk. kl. 00:00 og gildir til 21. júní nk. kl. 23:59.
Nánar ...
22.05.2020

Dagur í lífi kraftlyftingakonu

Dagur í lífi kraftlyftingakonuHulda B. Waage er kraftlyftingakona og margfaldur Íslandsmethafi í kraftlyftingum. Hún hóf að æfa kraftlyftingar árið 2010, þá 25 ára gömul, en hafði áður stundað djazzballett. Árið 2011 vann hún sitt fyrsta mót þar sem hún setti fimm Íslandsmet í sínum þyngdarflokki, -72 kg. Frá árinu 2016 hefur hún keppt í -84 kg flokki og sett 13 Íslandsmet. Hún var kjörin Kraftlyftingakona ársins árið 2018, en það ár setti hún mörg Íslandsmet og varð m.a. Íslandsmeistari í kraftlyftingum og bekkpressu. Hulda hefur keppt erlendis og varð t.d. í 8. sæti í -84 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum árið 2018.
Nánar ...