Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

31.10.2012

Forvarnardagurinn 2012 er í dag!

Forvarnardagurinn 2012 er í dag!Forvarnardagurinn er nú haldinn í sjöunda sinn. Dagurinn er hugmynd forseta lýðveldisins, Ólafs Ragnars Grímssonar og var í upphafi ætlaður nemendum í 9. bekk í grunnskólum landsins. Framhaldsskólunum var svo boðin þátttaka í fyrra og er svo aftur í ár. Gaman er að geta þess að allir framhaldsskólar landsins eru með í verkefninu í ár.
Nánar ...
26.10.2012

Verðlaunaafhending í Lífshlaupi framhaldsskólana

Verðlaunaafhending í Lífshlaupi framhaldsskólanaVerðlaunaafhending í Lífshlaupi framhaldsskólana fór fram í dag, föstudaginn 26. október, í íþróttamiðstöðinni. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, nefndarmaður í framkvæmdastjórn ÍSÍ ávarpaði gesti og veiti fulltrúum skólanna sín verðlaun ásamt Kristjáni Þór Magnússyni, sem á sæti í
Nánar ...
25.10.2012

Sambandsaðilar funda um ólympíska leika

Sambandsaðilar funda um ólympíska leika Í gær, miðvikudaginn 24. október, hélt Afreks- og Ólympíusvið ÍSÍ fund með sérsamböndum og íþróttanefndum ÍSÍ þar sem á dagskrá voru þeir sumarleikar sem eru framundan á næstu árum. Fundurinn hófst á umræðu um Ólympíuleikana 2012 í London þar sem fulltrúar þeirra sérsambanda er áttu keppendur á leikunum fóru yfir atriði sem snúa að undirbúningi og þátttöku sem og þá þætti sem hafa þarf í huga fyrir næstu leika. Formaður sviðssins, Friðrik Einarsson og sviðsstjóri, Andri Stefánsson, fóru yfir fjölmörg mál sem snúa að þátttöku Íslands í erlendum verkefnum og kynntu helstu þætti þeirra. Voru til umræðu Ólympíuleikarnir í Ríó 2016, Ólympíuleikar ungmenna í Nanjing 2014, Smáþjóðaleikar í Luxembourg 2013 og Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Utrecht 2013.
Nánar ...
25.10.2012

Kynningar í framhaldsskólum

Kynningar í framhaldsskólumSviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs heimsótti tvo framhaldsskóla á dögunum og var með kynningar og umfjöllun um ýmislegt sem snertir nám nemenda á íþróttasviði. Hann fjallaði m.a. um skipulag ÍSÍ, þjálfaramenntun og barna- og unglingastefnu ÍSÍ auk þess að ræða um siðfræði tengda íþróttaþjálfurum. Fyrri fyrirlesturinn var í Menntaskólanum á Tröllaskaga föstudaginn 19. október síðastliðinn og sá síðari í Kvennaskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 24. október.
Nánar ...
24.10.2012

Gengið í skólann um allt land

Gengið í skólann um allt landNú hafa þátttökuskólar í Göngum í skólann sent inn myndir og annað efni er segir frá þátttöku þeirra þetta árið. Það er undir hverjum skóla komið hvernig útfærsla verkefnisins er. Hægt er að taka þátt hluta úr göngum í skólann mánuðinum eða allan tímann. Einhverjir skólar skipuleggja sérstaka göngudaga meðan aðrir skrá niður ferðavenjur nemenda allan tímann.
Nánar ...
21.10.2012

Ólympíuleikar ungmenna 2018

Alþjóðaólympíunefndin hefur birt lista yfir þær borgir sem sótt hafa um að halda Ólympíuleika ungmenna árið 2018. Um er að ræða borgirnar Buenos Aires í Argentínu, Glasgow á Skotlandi, Guadalajara í Mexikó, Medellín í Kólumbíu og Rotterdam í Hollandi. Þessi listi
Nánar ...
18.10.2012

Úrslit í Lífshlaupi framhaldsskólana

Lífshlaup framhaldsskólana lauk síðastliðinn þriðjudag. Um 6500 nemendur og kennarar tóku þátt í Lífshlaupi framhaldsskólana. Staðfest úrslit voru birt á vef verkefnisins í dag. Fjölbrautarskóli Suðurnesja, Flensborgarskóli og Menntaskólinn að Laugarvatni unnu sína flokka. Nánari úrslit er að
Nánar ...
17.10.2012

Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands

Kveðja frá Íþrótta- og Ólympíusambandi ÍslandsÞað er ávallt sárt þegar símtal með tilkynningu um andlát berst. Þótt Gísli Halldórsson hafi staðið nærri tíræðu þegar hann féll frá þá verður hans saknað af íslenskri íþróttahreyfingu. Hann var heiðursforseti ÍSÍ, og hafði á sínum ferli gegnt stöðu forseta Íþróttasambands Íslands í 18 ár frá 1962-1980, og formanns Ólympíunefndar Íslands í 22 ár frá 1972-1994 eftir rúmlega fjögurra áratuga setu í nefndinni, auk ótal annarra trúnaðarstarfa hérlendis sem erlendis sem útilokað er að útlista í stuttri grein.
Nánar ...
12.10.2012

Nýr sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ

Nýr sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍÍþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur ákveðið að færa starf sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ til Reykjavíkur en Viðar Sigurjónsson hefur gegnt þeirri stöðu undanfarin ár, með aðsetur á Akureyri. Viðar mun þó áfram starfa hjá ÍSÍ sem skrifstofustjóri skrifstofunnar á Akureyrar ásamt því að hafa umsjón með verkefninu Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og þjálfaramenntun ÍSÍ. ÍSÍ þakkar Viðari fyrir hans góða starf í stöðu sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. ÍSÍ hefur ráðið Ragnhildi Skúladóttur í starf sviðsstjóra Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ. Ragnhildur mun hefja störf í nóvember næstkomandi.
Nánar ...
12.10.2012

Gísli Halldórsson látinn

Gísli Halldórsson látinnGísli Halldórsson arkitekt og Heiðursforseti ÍSÍ lést á Hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi mánudags 8. október síðastliðins, 98 ára að aldri. Ferill Gísla í íþróttahreyfingunni á Íslandi var einstakur. Í starfi sínu sem arkitekt teiknaði hann fjölmörg félagsheimili og íþróttamannvirki, m.a. íþróttaleikvanginn í Laugardal og Laugardalshöllina. Gísli var lengi borgarfulltrúi og var forseti borgarstjórnar um fjögurra ára skeið. Hann var einnig formaður í stjórn íþróttavallanna í Reykjavík 1958-1961 og
Nánar ...
12.10.2012

Fyrirlestur um Barna- og unglingastefnu ÍSÍ í Þingeyjarsveit

Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ var með fyrirlestur um stefnu ÍSí í barna- og unglingaíþróttum í Stórutjarnaskóla mánudaginn 8. október síðastliðinn. Fyrirlesturinn var í samstarfi við HSÞ og forystumenn skólans. Í lok fyrirlesturs var opnað fyrir umræður og var mikið rætt um stefnuna, gildi hennar og virkni. Einnig var rætt um íþróttalíf í héraði, möguleika og áherslur.
Nánar ...