Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

28.02.2022

Ráðherra í heimsókn

Ráðherra í heimsóknÁsmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra heimsótti höfuðstöðvar ÍSÍ og sérsambanda í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal síðasta föstudag. Hann heilsaði upp á starfsmenn ýmissa sambanda og að því loknu fundaði ráðherra og hans föruneyti með forseta ÍSÍ, 2. varaforseta, gjaldkera og framkvæmdastjóra ÍSÍ. Með ráðherra voru Örvar Ólafsson og Valgerður Þórunn Bjarnadóttir sérfræðingar úr ráðuneytinu.
Nánar ...
28.02.2022

Vanda kjörin formaður KSÍ til tveggja ára

Vanda kjörin formaður KSÍ til tveggja ára76. ársþing KSÍ fór að þessu sinni fram á Ásvöllum í Hafnarfirði í glæsilegum íþróttasal Hauka, Ólafssal, sem kenndur er við Ólaf E. Rafnsson, fyrrverandi forseta ÍSÍ. Þingið gekk vel undir stjórn þingforsetanna Þóris Haraldssonar og Helgu Guðrúnar Guðjónsdóttur.
Nánar ...
28.02.2022

Stjórn endurkjörin á ársþingi KRAFT

Stjórn endurkjörin á ársþingi KRAFTÁrsþing Kraftlyftingasambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 26. febrúar sl. Skýrsla stjórnar var flutt og reikningar sambandsins voru samþykktir.
Nánar ...
28.02.2022

Helgi sæmdur Gullmerki ÍSÍ á ársþingi KAÍ

Helgi sæmdur Gullmerki ÍSÍ á ársþingi KAÍÁrsþing Karatesambands Íslands (KAÍ) fór fram sunnudaginn 27. febrúar sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Um þrjátíu fulltrúar sátu þingið, frá fimm karatefélögum og -deildum. Hafsteinn Pálsson var þingforseti og Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði þingið við þingsetningu.
Nánar ...
28.02.2022

Lífshlaupið 2022 - Verðlaunaafhending

Lífshlaupið 2022 - VerðlaunaafhendingLífshlaupinu 2022 lauk í liðinni viku. Fulltrúar frá vinnustöðum og skólum tóku á móti verðlaunum í hádeginu föstudaginn 25. febrúar. Lífshlaupið 2022 var ræst í fimmtánda sinn þann 2. febrúar og var þátttaka með ágætum.
Nánar ...
26.02.2022

IOC og EOC fordæma brot Rússa á friðarsátt

IOC og EOC fordæma brot Rússa á friðarsáttBæði Alþjóðaólympíunefndin (IOC) og Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC) hafa fordæmt harðlega brot stjórnvalda í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi á svokölluðum Olympic Truce, friðarsátt sem Sameinuðu þjóðirnar samþykktu samhljóða 2. desember sl. í tengslum við Ólympíuleikana og Paralympics í Peking.
Nánar ...
25.02.2022

Hilmar Snær verður fulltrúi Íslands á Paralympics

Hilmar Snær verður fulltrúi Íslands á ParalympicsÍþróttasamband fatlaðra (ÍF) upplýsti í gær um þátttöku Íslands á Paralympics sem fram fara dagana 4. -13. mars nk. í Peking. Fulltrúi Íslands á leikunum verður Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður úr Víkingi en þetta verða hans aðrir leikar.
Nánar ...
23.02.2022

Öllum takmörkunum aflétt á miðnætti

Öllum takmörkunum aflétt á miðnættiÁ miðnætti verður öllum takmörkunum vegna COVID-19 faraldursins aflétt, bæði innanlands og við landamærin. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir íþróttahreyfinguna sem og alla landsmenn.
Nánar ...
20.02.2022

Peking 2022 / Snorri fánaberi á lokahátíð

Peking 2022 / Snorri fánaberi á lokahátíðLokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Peking fer fram í dag sunnudaginn 20. febrúar, eða réttara sagt í kvöld á staðartíma. Snorri Eyþór Einarsson, keppandi í skíðagöngu, verður fánaberi Íslands á hátíðinni.
Nánar ...
20.02.2022

Peking / Snorri Einarsson hefur lokið keppni

Peking / Snorri Einarsson hefur lokið keppniSnorri Einarsson lauk keppni á Vetrarólympíuleikunum í gær laugardag. Hann náði 23. sæti í göngunni sem er besti árangur sem íslenskur skíðagöngumaður hefur náð á Ólympíuleikum. Snorri var 3 mínútum og 18 sekúndum á eftir Bolshunov en sá var lengi á meðal fremstu manna.
Nánar ...