Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Opnunartími ÍSÍ
Skrifstofa ÍSÍ verður opin frá 10-14 alla virka daga í þessari viku, en lokað verður á fimmtudaginn á sumardaginn fyrsta.
Hjólað í vinnuna hefst 6. maí
Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 6. - 26. maí nk. Opnað verður fyrir skráningar á vefsíðu Hjólað í vinnuna 22. apríl og hægt er að skrá sig allan tímann á meðan keppni stendur yfir eða fram til 26. maí.
Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Þrautakeppnir KKÍ
Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur sett í gang stuttar þrautakeppnir með körfubolta sem allir áhugasamir geta tekið þátt í heima. Fjórar keppnir eru á döfinniInnblástur frá Ólympíuförum
Á vefsíðu Ólympíustöðvarinnar, Olympic Channel, má sjá æfingar sem framkvæma má heima fyrir. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir fólk sem vill prófa að æfa eins og Ólympíufarar æfa á tímum samkomubanns. Finna má æfingar fyrir allan líkamann eða einstaka líkamsparta, eins og kviðæfingar, lyftingaræfingar fyrir fætur o.fl. á vefsíðunni. Afreksíþróttafólkið sem deilir æfingunum kemur úr hinum ýmsu íþróttagreinum; skautum, karate, boxi, frjálsíþróttum og sundi.
Fimleikadeild Gróttu með heimaæfingar
500 milljónir til íþrótta- og æskulýðsstarfs
Samkvæmt frétt á vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytis í gær munu 500 milljónir króna renna til íþrótta- og æskulýðsstarfs til að mæta áhrifum COVID-19.
Íþróttastarf leyfilegt með takmörkunum 4. maí
Forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra kynntu á blaðamannafundi í gær næstu skref stjórnvalda vegna Covid-19. Heilbrigðisráðherra gerði þar grein fyrir ákvörðun sinni um tilslakanir á takmörkunum á samkomum, skólahaldi og skipulögðu íþróttastarfi. Breytingarnar taka gildi 4. maí.
Við berjumst fyrir draumnum
Áætlanir margra hafa breyst eftir að ljóst var að Ólympíuleikunum í Tókýó 2020 yrði frestað um eitt ár, en leikarnir munu fara fram frá 23. júlí til 8. ágúst 2021. Einn íslenskur badmintonspilari stefndi á þátttöku á Ólympíuleikunum, Kári Gunnarsson en hann er áttfaldur Íslandsmeistari í einliðaleik karla. Kári hafði ekki unnið sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Tókýó þegar að ákvörðun var tekin um að fresta leikunum, en lokalisti yfir þátttakendur hefði undir venjulegum kringumstæðum verið birtur þann 1. maí nk. Kári hefur sl. þrjú ár keppt á alþjóðlegum mótum um heim allan til þess að koma sér upp heimslistann og fá keppnisrétt á Ólympíuleikunum. Hann hefur nú þurft að endurskipuleggja áætlanir sínar og stefnir á Ólympíuleikana 2021.
Íþróttahreyfingin og Covid-19
Undanfarnar vikur hefur allt skipulagt íþróttastarf legið niðri vegna fordæmalausra aðstæðna af völdum kórónaveirunnar. Forseti ÍSÍ, Lárus L. Blöndal, hvetur íþróttahreyfinguna til að halda í jákvæðni og bjartsýni á þessum erfiðu tímum.
Fjarnám í Þjálfaramenntun ÍSÍ
Fjarnám 1. 2. og 3. stigs verður í boði núna í apríl sem er óvenjulegt en gert í ljósi þess að nemendur hafi hugsanlega góðan tíma til að sinna náminu þessa dagana. Námið hefst mánudaginn 20. apríl. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.
Opnunartími ÍSÍ
Skrifstofa ÍSÍ verður opin frá 10-14 alla virka daga í þessari viku og næstu.