Fréttasafn
2025
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október.
2024
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2023
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2022
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2021
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2020
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2019
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2018
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2017
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2016
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2015
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2014
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2013
Janúar, Febrúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember, Desember.
2012
Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, September, Október, Nóvember, Desember.
2011
Ellert B. Schram heiðraður af EOC
Framkvæmdastjórn Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) samþykkti einróma á stjórnarfundi sínum að sæma Ellert B. Schram Heiðursforseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands heiðursviðurkenningunni EOC Laurel Award – lárviðarsveig EOC.Körfuknattleiksdeild Tindastóls fyrirmyndardeild ÍSÍ
Körfuknattleiksdeild Tindastóls fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem fyrirmyndardeild ÍSÍ fimmtudaginn 8. nóvember síðastliðinn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Viðurkenningin var afhent í hálfleik í æsispennandi leik Tindastóls og Grindavíkur í úrvalsdeild karla. Það var Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri sem afhenti formanni deildarinnar Ingólfi Jóni Geirssyni viðurkenninguna. Á myndunum eru þeir Viðar og Ingólfur Jón ásamt hluta iðkenda í 10. flokki kvenna sem voru formanninum til stuðnings við móttöku viðurkenningarinnar.Dagur gegn einelti
Skíðasamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Afrekssjóður ÍSÍ tók upp nýtt fyrirkomulag á árinu og hafa sérsambönd hlotið styrki úr sjóðnum. Samningur Skíðasambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins var undirritaður í gær.Styrkir til mannúðar- og þróunarsamvinnuverkefna
Nikolay skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambandsins
Nikolay Ivanov Mateev, formaður Skylmingasambands Íslands, var skipaður varaforseti Evrópska skylmingasambandsins á dögunum.
Nikolay hefur verið potturinn og pannan í skylmingaíþróttinni hér á landi um langt árabil. Hann var lengi framkvæmdastjóri Skylmingasambandsins og var kjörinn formaður sambandsins árið 2016.Körfuknattleikssamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Afrekssjóður ÍSÍ tók upp nýtt fyrirkomulag á árinu og hafa fjölmörg sérsambönd hlotið styrki úr sjóðnum. Samningur Körfuknattleikssambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins var undirritaður á dögunum.Líney Rut leiðir vinnuhóp um Ólympíuakademíur
Þann 26. október sl. fór fram fundur vinnuhóps um Ólympíuakademíur í höfuðstöðvum Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) í Róm. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ sem situr í framkvæmdastjórn EOC leiðir vinnuhópinn ásamt formanni hópsins, Gudrun Doll-Tepper frá Þýskalandi. Vinnuhópurinn var stofnaður fyrr á þessu ári og er honum fyrst og fremst ætlað að leiðbeina EOC um menntamál og menningarstarfsemi. Á fundinum gaf formaður hópsins skýrslu um stofnun Evrópusambands Ólympíuakademía (EOA) sem fór fram þann 20. september sl. í Ljubljana í Slóveníu. Rætt var um vinnuáætlun hópsins og samvinnu við EOC og EOA. Hópurinn ætlar að hittast næst í tengslum við aðalfund Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) í Marbella á Spáni á fundi sem kallast „Umhverfi og íþróttir fyrir alla“. Þar munu allir formenn nefnda EOC og vinnuhópar fara yfir þau störf sem þeir hafa unnið og áætlanir hópanna í framtíðinni.
Frábær ráðstefna um jákvæða íþróttamenningu
Uppselt var á ráðstefnuna „Jákvæð íþróttamenning“ sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands héldu ráðstefnuna í samvinnu við Háskólann í Reykjavík undir merkjum verkefnisins Sýnum karakter sem ÍSÍ og UMFÍ standa saman að. Áherslan á ráðstefnunni var á félagslegar og sálrænar hliðar íþrótta og rætt var um leiðir til að byggja upp jákvæða menningu í íþróttastarfinu. Ráðstefnugestir komu víða að og var fjöldi gesta frá Neskaupstað, Ísafirði, úr Dölunum, Keflavík og víðar sem gerði sér ferð til að fræðast og ræða saman um það hvernig hægt er að gera gott starf enn betra.Handknattleikssamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Afrekssjóður ÍSÍ tók upp nýtt fyrirkomulag á árinu og hafa fjölmörg sérsambönd hlotið styrki úr sjóðnum. Samningur Handknattleikssambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins var undirritaður á dögunum.
Uppselt á íþróttaráðstefnu ÍSÍ og UMFÍ
„Það er frábært að sjá hvað þjálfarar, fólk í stjórnum íþróttafélaga og íþróttafólk sýnir ráðstefnunni mikinn áhuga. Það sýnir að við erum á réttri leið og fólk vill fræðast um og innleiða jákvæða menningu í íþróttum. Alltaf er hægt að bæta gott starf,“ segir Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.
Sundsamband Íslands hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ
Afrekssjóður ÍSÍ tók upp nýtt fyrirkomulag á árinu og hafa fjölmörg sérsambönd hlotið styrki úr sjóðnum.
Nýverið var gengið frá samningi Sundsambands Íslands og Afrekssjóðs ÍSÍ vegna styrkveitinga ársins.