Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

17

23.01.2023

Ekki missa af ráðstefnunni „Íþróttir 2023”!

Ekki missa af ráðstefnunni „Íþróttir 2023”!Ráðstefnan „ÍÞRÓTTIR 2023” verður haldin 1.-2. febrúar í Háskólanum í Reykjavík. Að ráðstefnunni standa Íþróttabandalag Reykjavíkur, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games.
Nánar ...
21.01.2023

Blásið til sóknar í afreksíþróttastarfi - Vésteinn til starfa á Íslandi

Blásið til sóknar í afreksíþróttastarfi - Vésteinn til starfa á ÍslandiMennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands skrifuðu í dag undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Vésteinn Hafsteinsson mun verða ráðinn Afreksstjóri ÍSÍ og mun samhliða því leiða nýjan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks
Nánar ...
17.01.2023

Þjóðarhöll innanhússíþrótta - framkvæmdir hefjast í byrjun árs 2024

Þjóðarhöll innanhússíþrótta - framkvæmdir hefjast í byrjun árs 2024„Það er sannarlega ánægjulegt að sjá áætlanir varðandi uppbyggingu þessar mikilvæga mannvirkis. Það er ljóst að keyra þarf verkefnið hratt og vel áfram ef áætlanir um framkvæmdir í byrjun árs 2024 eiga að raungerast og höfum við fulla trú á því að metnaðarfull áætlun framkvæmdaraðila standist. Við erum öll afar spennt að sjá þjóðarhöllina rísa í Laugardalnum, hjarta íþróttahreyfingarinnar þar sem fyrir eru frábær íþróttamannvirki og höfuðstöðvar ÍSÍ og flestra sérsambanda ÍSÍ. Það er gríðarlega mikilvægt að leysa húsnæðisvanda landsliða innanhússíþrótta sem allra fyrst og frábært að sjá framkomnar tillögur um fjölnýtingu hússins. Þetta er dýr framkvæmd og áríðandi að geta sýnt fram á sem besta nýtingu mannvirkisins og fjármuna sem til þess renna.“
Nánar ...
12.01.2023

Þátttakendur á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar staðfestir

Þátttakendur á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar staðfestirÞað styttist í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Friuli Venezia Giulia á Ítalíu 21.-28. janúar. Það er glæsilegur hópur ungmenna sem mun keppa fyrir Íslands hönd á leikunum. Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur nú staðfest íslenska hópinn sem fer á hátíðina:
Nánar ...