Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

09.02.2021

Ráðstefna RIG - Íþróttir eru fyrir alla

Ráðstefna RIG - Íþróttir eru fyrir allaRáðstefnan Íþróttir eru fyrir alla var haldin þann 4. febrúar sl. í tengslum við Reykjavíkurleikana og fór fram í Háskólanum í Reykjavík. Vegna samkomutakmarkana voru fáir áheyrendur í sal, en ráðstefnunni var streymt á Youtube rás Reykjavíkurleikanna. Að ráðstefnunni stóðu auk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ), Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Háskólinn í Reykjavík (HR).
Nánar ...
08.02.2021

Tækifæri í íþróttastarfi

Tækifæri í íþróttastarfiFélagsmálaráðuneytið veitir styrki til verkefna sem ætlað er að styðja sérstaklega við aðgerðir og markmið í framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021.
Nánar ...
06.02.2021

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fagnað

Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fagnað​Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar átti að hefjast í dag í Vuokatti í Finnlandi, þann 6. febrúar og standa yfir til 13. febrúar 2021. Hátíðinni var frestað fyrir nokkrum mánuðum, en hún mun í staðinn fara fram dagana 11.-18. desember í ár.
Nánar ...
04.02.2021

Upplýsingafundur með fulltrúum Vinnumálastofnunar

Upplýsingafundur með fulltrúum VinnumálastofnunarRétt í þessu lauk upplýsingafundi ÍSÍ með fulltrúum Vinnumálastofnunar (VMST) þar sem farið var í gegnum umsóknarferli og skilyrði til umsókna um greiðslur til lögaðila innan ÍSÍ vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Nánar ...
04.02.2021

Stýrihópur um íþrótta- og tómstundastyrki

Stýrihópur um íþrótta- og tómstundastyrkiFélags- og barnamálaráðuneytið hefur stofnað sérstakan stýrihóp um íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn frá efnaminni heimilum, með fulltrúum frá félags- og barnamálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Íþróttasambandi fatlaðra, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Ungmennafélagi Íslands. Fulltrúi ÍSÍ í hópnum er Þórarinn Alvar Þórarinsson, verkefnastjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.
Nánar ...
04.02.2021

Þjóðarleikvangur í augsýn

Þjóðarleikvangur í augsýnStarfshópur til að gera tillögur um fyrirkomulag þjóðarleikvangs fyrir frjálsíþróttir hefur verið skipaður af Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Þetta kemur fram í frétt á heimsíðu Stjórnarráðs Íslands
Nánar ...
04.02.2021

Eitt ár til Vetrarólympíuleikanna 2022

Eitt ár til Vetrarólympíuleikanna 2022Í dag er eitt ár þar til setningarhátíð Vetrarólympíuleikanna 2022 í Peking í Kína fer fram þann 4. febrúar 2022. Lokahátíðin fer fram þann 20. febrúar. Alþjóðaólympíunefndin (IOC) fagnar deginum að mestu leyti með rafrænum hætti undir myllumerkinu #StrongerTogether.
Nánar ...
03.02.2021

Lífshlaupið 2021 er hafið

Lífshlaupið 2021 er hafiðMikil gleði ríkti í Rimaskóla í morgun þegar Lífshlaupið var formlega sett af stað. Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastýra byrjaði á að bjóða gesti velkomna. Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ ávarpaði svo gesti og hvatti börnin til þess að hreyfa sig og muna að vera með endurskinsmerki.
Nánar ...
01.02.2021

Tannverndarvikan

TannverndarvikanTannverndarvika embættis landlæknis og Tannlæknafélags Íslands stendur yfir dagana 1.-5. febrúar og í ár er áherslan lögð á fræðslu um skaðleg áhrif orkudrykkja, bæði á almenna heilsu sem og tannheilsu ungmenna.
Nánar ...
01.02.2021

Íþróttir eru fyrir alla - RIG ráðstefna

Íþróttir eru fyrir alla - RIG ráðstefnaHvernig líður hinsegin ungu fólk í íþróttum? Eru íþróttir fyrir alla? Þessum spurningum og öðrum verður svarað fimmtudaginn 4. febrúar í Háskólanum í Reykjavík kl. 13:00 – 16:00. Ráðstefnan er hluti af Reykjavíkurleikunum (RIG).
Nánar ...