Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
2

14.03.2018

Skemmtilegar myndir á myndasíðu ÍSÍ

Skemmtilegar myndir á myndasíðu ÍSÍÁ myndasíðu ÍSÍ má finna myndir frá hinum ýmsu viðburðum. Unnið er að því að koma myndasafni ÍSÍ inn á myndasíðuna. Til gamans má geta þess að nú hafa verið settar inn eldri myndir á síðuna sem tengjast Ólympíuleikum, Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ og ýmsar skemmtilegar myndir má sjá frá sambandsaðilum ÍSÍ.
Nánar ...
13.03.2018

Norðlenskar verðlaunaafhendingar í Lífshlaupinu 2018

Norðlenskar verðlaunaafhendingar í Lífshlaupinu 2018Norðlenskir þátttakendur stóðu sig með prýði í Lífshlaupinu 2018 enda öflugt afreksfólk við Eyjafjörðinn og í innsveitum. Því miður átti enginn þeirra heimangengt til að mæta á verðlaunaafhendingu Lífshlaupsins sem fram fór þann 23 febrúar sl. ÍSÍ býr hins vegar svo vel að eiga frábæra fulltrúa á Akureyri, en Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri og Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ tóku sig til og veittu verðlaunahöfum viðurkenningar nýlega.
Nánar ...
13.03.2018

Keppni hefst hjá Hilmari Snæ á morgun

Keppni hefst hjá Hilmari Snæ á morgunÁ morgun 14. mars (laust eftir miðnætti í dag að íslenskum tíma kl. 00:25) hefst keppni hjá Hilmari Snæ Örvarssyni á Vetrar-Paralympics í PyeongChang í Kóreu. Vegna aðstæðna hefur mótsstjórn ákveðið að snúa við dagskránni í alpagreinum en upphaflega stóð til að Hilmar myndi keppa í svigi 14. mars en nú keppir hann í stórsvigi fyrst (14. mars) og síðan í svigi þann 17. mars.
Nánar ...
12.03.2018

10. ársþing HSÞ

10. ársþing HSÞÁrsþing Héraðssambands Þingeyinga var haldið að Ýdölum sunnudaginn 11. mars síðastliðinn. Þingið var vel sótt en alls voru um 58 þingfulltrúar mættir af 71 og komu þeir frá 19 aðildarfélögum af 22. Alls 15 tillögur lágu fyrir þinginu og bættist sú 16. við í nefndarstörfum. Tillaga um breytingar á úthlutun lottótekna var felld á jöfnu en annars voru flestar tillögurnar samþykktar. Meðal samþykktra tillagna má nefna tillögu um nýja Íþrótta- og æskulýðsstefnu HSÞ sem þingið samþykkti að stjórnin í samvinnu við aðildarfélögin, önnur samtök, sveitarfélög, skóla, fyrirtæki o.fl. muni vinna á komandi misserum. Einnig var samþykkt tillaga um að HSÞ vinni að því að gerast fyrirmyndarhérað ÍSÍ. Formaður HSÞ, Anita Karin Guttesen gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í formannsstóli og var nýr formaður, Jónas Egilsson frá Ungmennafélagi Langnesinga kjörinn í hennar stað. Þinginu var stjórnað af röggsemi af þingforsetanum Ara Jósavinssyni.
Nánar ...
12.03.2018

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2017

Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2017Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga til íþrótta- og ungmennafélaga, vegna keppnisferða innanlands ársins 2017.Til úthlutunar að þessu sinni voru 127 milljónir króna. Styrkirnir eru greiddir beint til félaga og deilda en hér fyrir neðan má sjá samantekt á skiptingunni tekið saman pr. íþróttahérað.
Nánar ...
12.03.2018

Starfsamt ársþing UMSS

Starfsamt ársþing UMSSUngmennasamband Skagafjarðar hélt ársþing sitt í Húsi frítímans á Sauðárkróki laugardaginn 10. mars síðastliðinn. Þingfulltrúar voru alls 43 af 69 mögulegum og komu þeir frá 8 aðildarfélögum af 10. Þingforseti var Gunnar Sigurðsson sem stýrði þinginu af mikilli röggsemi. Arnrún Halla Arnórsdóttir gaf ekki kost á sér áfram til formannssetu og var Ingibjörg Klara Helgadóttir frá Ungmennafélaginu Smára kjörin í hennar stað. Með henni í stjórn eru þau Gunnar Þór Gestsson varaformaður, Sigríður Fjóla Viktorsdóttir gjaldkeri, Þorvaldur Gröndal ritari og Sigmundur Jóhannesson meðstjórnandi. Í varastjórn eru Arnrún Halla Arnórsdóttir, Jón Daníel Jónsson og Þórunn Eyjólfsdóttir.​
Nánar ...
12.03.2018

Vetrar-Paralympics settir með glæsibrag í Suður-Kóreu

Vetrar-Paralympics settir með glæsibrag í Suður-KóreuOpnunarhátíð Vetrar-Paralympics fór fram föstudaginn 9. mars sl. og var hátíðin sett með pompi og prakt í PyeongChang í Suður-Kóreu. Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson úr Víkingi var fánaberi Íslands við athöfnina en hann er jafnframt eini keppandi Íslands á leikunum.
Nánar ...
11.03.2018

Ársþing HSK - Gullmerki ÍSÍ afhent

Ársþing HSK - Gullmerki ÍSÍ afhentUm 100 manns mættu á héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins, sem haldið var í Þorlákshöfn 10. mars sl.. Á þinginu var lögð fram vegleg ársskýrsla um störf sambandsins á liðnu ári, ásamt því að í skýrslunni eru stutt yfirlit um störf aðildarfélaga sambandsins.
Nánar ...
08.03.2018

Íslenski keppnishópurinn boðinn velkominn

Íslenski keppnishópurinn boðinn velkominnÍslenski keppnishópurinn var í gær boðinn velkominn í Paralympic-þorpið á Vetrar-Paralympics sem nú standa yfir í PyeongChang í Suður-Kóreu. Eftir langt og strangt ferðalag voru þeir Hilmar Snær Örvarsson skíðamaður, Þórður Georg Hjörleifsson þjálfari og Einar Bjarnason aðstoðarþjálfari mættir við mótttökuathöfnina.
Nánar ...
08.03.2018

Metoo og börnin - Morgunverðarfundur

Metoo og börnin - MorgunverðarfundurNáum áttum, samstarfshópur um fræðslu- og forvarnarmál, stendur fyrir morgunverðarfundi miðvikudaginn 14. mars nk. á Grand Hótel kl.08:15-10:00 sem ber heitið „Metoo og börnin - öryggi barna og ungmenna í tómstunda-, íþrótta- og æskulýðsstarfi“.
Nánar ...
08.03.2018

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dag

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna í dagTil stuðnings alþjóðlegum baráttudegi kvenna og ákalli til aðgerða eða #pressforprogress herferðinni birtir Alþjóðaólympíunefndin (IOC) í dag lykilniðurstöður jafnréttisrannsóknar (Gender Equality Review Project) sem framkvæmd var á þeirra vegum.
Nánar ...