Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

17

22.03.2018

Vladmir Vanja Grbic, ólympíumeistari í blaki, heimsækir Ísland

Vladmir Vanja Grbic, ólympíumeistari í blaki, heimsækir ÍslandHelgina 23.-25. mars 2018 mun Vladimir Vanja Grbic vera með blakbúðir á Húsavík. Verkefnið er samstarfsverkefni blakdeildar Völsungs (Blakdeild Völsungs), BLÍ - Blaksamband Íslands og Special Olympics á Íslandi (Íþróttasamband fatlaðra) en Vladimir Grbic er „Global Ambassador volleyball" hjá Special Olympics.
Nánar ...
22.03.2018

Nám Alþjóðaólympíunefndarinnar á netinu

Nám Alþjóðaólympíunefndarinnar á netinuEftir íþróttaferilinn stendur mikið af íþróttafólki á tímamótum. Samkvæmt Aðgerðaráætlun Alþjóðaólympíunefndarinnar 2020 (Olympic Agenda 2020) er eitt aðalmarkmið nefndarinnar að efla stuðning við íþróttafólk innan og utan íþrótta og auka möguleika þeirra á atvinnuferli eftir íþróttaferilinn.
Nánar ...
21.03.2018

Heiðranir á ársþingi BLÍ

Heiðranir á ársþingi BLÍÁ ársþingi Blaksambands Íslands (BLÍ) sem fram fór 4. mars sl. var Stefán Jóhannsson varaformaður BLÍ sæmdur Gullmerki ÍSÍ fyrir góð störf í þágu blakíþróttarinnar.
Nánar ...
19.03.2018

Hádegisfundur - Af hverju íþróttamælingar?

Hádegisfundur - Af hverju íþróttamælingar?Föstudaginn 23. mars kl: 12:10 mun Sveinn Þorgeirsson aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík fara yfir samstarf íþróttafræðisviðs HR og nokkurra sérsambanda innan ÍSÍ. Af hverju að framkvæma mælingar? Hverju eiga þær að skila? Hvað á að gera við gögnin? Hvernig fer samstarf háskóla og landsliðsþjálfara fram?
Nánar ...
19.03.2018

Hilmar í 13. sæti í svigkeppninni

Hilmar í 13. sæti í svigkeppninniHilmar Snær Örvarsson keppti í svigi á Vetrar-Paralympics í PyeongChang sl. laugardag, 17. mars. Hilmar hafnaði í 13. sæti af þeim 23 keppendum sem náðu að ljúka keppni. Hilmar lauk því keppni í 20. sæti í stórsviginu og 13. sæti í svigkeppninni og ljóst er að hann er að bæta punktastöðu sína á heimslistanum umtalsvert.
Nánar ...
19.03.2018

Ásgeir sæmdur Gullmerki ÍSÍ

Ásgeir sæmdur Gullmerki ÍSÍ​44. Ársþing Lyftingasambands Íslands var haldið þann 17. mars 2018 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Formaður setti þingið og bauð þingfulltrúa velkomna, en þingfulltrúar voru alls 12 frá sjö aðildarfélögum LSÍ. Ásgeir Bjarnaon, formaður LSÍ, flutti skýrslu stjórnar og svo reikninga þess í fjarveru gjaldkera. Fram kom að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs sem formaður, en gefur kost á sér til stjórnarsetu. Fyrir þinginu lá ein lagabreytingartillaga svo og tvær tillögur um breytingar á móta- og keppnisreglum, sem starfað hefur verið eftir síðasta keppnistímabil eftir samþykki stjórnar. Allar tillögur voru samþykktar einróma.
Nánar ...
15.03.2018

Ársþing USVH 2018

Ársþing USVH 2018USVH hélt ársþing sitt á Laugarbakka miðvikudaginn 14. mars síðastliðinn. Alls voru 30 þingfulltrúar mættir til þings af 34 mögulegum. Þingforseti var Júlíus Guðni Antonsson og stýrði hann þinginu af mikilli röggsemi eins og oft áður. Fjölmargar tillögur lágu fyrir þinginu og má þar nefna tillögu um nýja stefnu USVH í fjölmörgum málaflokkum. Stefnan er hluti af vinnu sambandsins í átt að því að fá viðurkenningu frá ÍSÍ sem fyrirmyndarhérað. Tillaga um umsókn USVH til ÍSÍ þessa efnis var samþykkt samhljóða á þinginu. Reimar Marteinsson var endurkjörinn formaður sambandsins. Þórey Edda Elísdóttir stjórnarmaður í USVH og jafnframt úr framkvæmdastjórn ÍSÍ kynnti niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir íbúa sveitarfélagsins hvað varðar þörf á byggingu nýrra íþróttamannvirkja. Niðurstöður voru athyglisverðar og voru ræddar í þingsal. Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þau Þórey Edda Elísdóttir og Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri.
Nánar ...
14.03.2018

85. ársþing USÚ

85. ársþing USÚ85. ársþing USÚ var haldið í Hofgarði í Öræfum þann 12. mars sl. 24 ár eru liðin síðan ársþing USÚ var síðast haldið í Öræfum. Þingið var ágætlega sótt, 27 fulltrúar af 42 mættu frá flestum félögum.
Nánar ...
14.03.2018

Hilmar hafnaði í 20. sæti í stórsvigi

Hilmar hafnaði í 20. sæti í stórsvigiHilmar Snær Örvarsson hefur lokið sinni fyrstu grein á Vetrar-Paralympics í Suður-Kóreu en hann varð á íslenskum tíma í nótt í 20. sæti í stórsvigi í standandi flokki. Hilmar bætti sig um tæpa sekúndu á milli ferða, var í 26. sæti eftir fyrri ferðina og klifraði upp í 20. sæti eftir þá síðari. Glæsileg frammistaða hjá þessum 17 ára skíðamanni frá Víkingi.
Nánar ...