Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
3

09.10.2021

Nýir Heiðursfélagir ÍSÍ kjörnir á Íþróttaþingi

Nýir Heiðursfélagir ÍSÍ kjörnir á ÍþróttaþingiVið þingsetningu framhaldsþings 75. Íþróttaþings ÍSÍ var borin upp tillaga um sex nýja Heiðursfélaga ÍSÍ. Samþykkti þingið tillöguna með dynjandi lófataki. Nafnbótin Heiðursfélagi ÍSÍ er æðsta viðurkenning íþróttahreyfingarinnar og þeir sem geta hlotið þá nafnbót eru þeir sem hafa þegar hlotið Heiðurskross ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu ÍSÍ.
Nánar ...
09.10.2021

Örn Clausen og Haukur Clausen útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ í dag

Örn Clausen og Haukur Clausen útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ í dagFramhaldsþing 75. Íþróttaþings ÍSÍ var sett í Gullhömrum í Grafarholti kl. 13:00 í dag. Við þingsetninguna voru tvíburabræðurnir Örn Clausen og Haukur Clausen teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ. Þeir eru 21. og 22. einstaklingurinn sem hlýtur útnefningu í hina óáþreifanlegu höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands.
Nánar ...
09.10.2021

Framhaldsþing 75. Íþróttaþing ÍSÍ stendur yfir

Framhaldsþing 75. Íþróttaþing ÍSÍ stendur yfirFramhaldsþing 75. Íþróttaþing ÍSÍ stendur nú yfir í Gullhömrum í Grafarholti. Um 100 þingfulltrúar af öllu landinu, bæði frá íþróttahéruðum og sérsamböndum, sitja þingið og fjalla þar um hagsmunamál hreyfingarnnar, stefnur og strauma.
Nánar ...
08.10.2021

Þingnefndastarf í Laugardalnum í dag

Þingnefndastarf í Laugardalnum í dagÞingnefndir framhaldsþings 75. Íþróttaþings ÍSÍ störfuðu í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal síðdegis í dag. Samkvæmt lögum ÍSÍ þá eru fjórar fimm manna þingnefndir kjörnar á Íþróttaþingi, þ.e. Fjárhagsnefnd, Allsherjarnefnd, Laganefnd og Afreksnefnd. Þingnefndirnar voru kjörnar á fyrri hluta þings sem fór fram sem fjarþing 7. maí sl.
Nánar ...
08.10.2021

Ársþing ÍBR fór fram 2. október

Ársþing ÍBR fór fram 2. október50. ársþing Íþróttabandalags Reykjavíkur fór fram í Icelandair Hotel Reykjavík Natura 2. október sl. Til þings mættu 62 fulltrúar frá 26 aðildarfélögum bandalagsins. Fjölmargar tillögur voru teknar fyrir á þinginu og var umræða um þær lífleg.
Nánar ...
06.10.2021

Forvarnardagurinn 2021 er í dag

Forvarnardagurinn 2021 er í dagForvarnardagurinn er haldinn í sextánda skipti í dag 6. október og eru viðburðir tengdir honum í flestum grunn- og framhaldsskólum landsins þar sem sjónum er sérstaklega beint að ungmennum í 9. bekk grunnskóla og á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Nánar ...
03.10.2021

Vanda nýr formaður hjá KSÍ

Vanda nýr formaður hjá KSÍAukaþing KSÍ fór fram laugardaginn 2. október sl. á Hilton Reykjavík Nordica. Um var að ræða sérstakt aukaþing sem boðað var til með mánaðarfyrirvara í ljósi þeirra atburða sem uppi hafa verið innan knattspyrnuhreyfingarinnar á Íslandi.
Nánar ...
01.10.2021

Dagur göngunnar þann 3. október

Dagur göngunnar þann 3. októberSunnudaginn 3. október kl. 10:00, fer fram boðhlaupsganga um allan heim en markmiðið með göngunni er að koma boðhlaupskefli á rafrænan hátt yfir öll 24 tímabeltin.
Nánar ...