Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

04.09.2015

Norræna skólahlaupið sett í dag

Norræna skólahlaupið sett í dagNorræna skólahlaupið var sett í í blíðskaparveðri í Sunnulækjarskóla á Selfossi í morgun kl. 10:30. Hlaupið var mjög vel skipulagt af skólans hálfu og tóku um 600 grunnskólanemendur þátt.
Nánar ...
03.09.2015

Nýr bæklingur um íþróttir barna og unglinga

Nýr bæklingur um íþróttir barna og unglingaÚt er kominn nýr bæklingur um íþróttir barna og unglinga og ber hann heitið Íþróttir – barnsins vegna. Á Íþróttaþingi í apríl 2015 var endurskoðuð stefna um íþróttir barna og unglinga samþykkt og hefur innihald stefnunnar tekið nokkrum breytingum.
Nánar ...
03.09.2015

Norræna skólahlaupið

Norræna skólahlaupið verður sett í Sunnulækjarskóla á Selfossi föstudaginn 4. september 2015 kl. 10:30. Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Hlaupið var fyrst haldið árið 1984. Í ár tengist hlaupið Íþróttaviku Evrópu, verkefni sem Evrópuráðið hefur nýlega hrundið af stað.
Nánar ...
02.09.2015

Efnisveita ÍSÍ

Efnisveita ÍSÍÍ efnisveitunni má finna öll helstu gögn sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur gefið út. Má meðal annars nefna Lög, reglugerðir og stefnur, eyðublöð og fræðslubæklinga.
Nánar ...
01.09.2015

Fróðleikur tengdur íþróttum

Fróðleikur tengdur íþróttumHaustin eru ávallt sá tími þegar fólk fer að huga að námi og námskeiðum. Á fjölmörgum heimasíðum má finna skemmtilegan fróðleik, nám og kennsluefni sem hentar íþróttafólki og þeim er starfa í tengslum við íþróttir.
Nánar ...
31.08.2015

Íþróttavika Evrópu 2015

Íþróttavika Evrópu 2015Evrópusambandið hefur hrundið af stað nýju verkefni sem kallast Íþróttavika Evrópu. Markmiðið með vikunni er að kynna íþróttir og hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Slagorð vikunnar er "BeActive" eða „Vertu virkur“ og með því er verið að hvetja alla Evrópubúa til að hreyfa sig án tillits til aldurs, bakgrunns eða líkamlegs forms.
Nánar ...
26.08.2015

Fundur aðalfararstjóra í Ríó

Fundur aðalfararstjóra í RíóÁ dögunum fór fram undirbúningsfundur aðalfararstjóra vegna Ólympíuleikanna í Ríó, sem fara fram í ágúst 2016. Hefð er fyrir því að ári fyrir Ólympíuleika sé haldinn fundur með fulltrúum allra þjóða þar sem mannvirki eru skoðuð og farið yfir þá fjölmörgu þætti sem snúa að leikunum, s.s. skráningarmál, þátttökurétt, ferðatilhögun, gistimöguleika, öryggismál, miðasölu, dagskrá og margt fleira.
Nánar ...
24.08.2015

Ólympíukyndillinn tendraður þann 21. apríl

Ólympíukyndillinn tendraður þann 21. aprílSkipulagsnefnd Ólympíuleikanna 2016 tilkynnti nýlega að kveikt yrði á Ólympíukyndlinum þann 21. apríl 2016 í borginni Ólympíu á Grikklandi, þar sem Ólympíuleikarnir til forna fóru fram. Þann 3. maí mun kyndillinn hefja 95 daga för sína um Brasilíu, sem endar þann 5. ágúst þegar að Ólympíueldurinn verður tendraður á setningarhátíð leikanna.
Nánar ...
21.08.2015

Hjólum í skólann 9.-22. september

Hjólum í skólann 9.-22. septemberHjólum í skólann – framhaldsskólakeppni fer fram í annað sinn dagana 9.-22. september 2015 í tengslum við evrópsku samgönguvikuna. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Nánar ...
21.08.2015

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins færður þakklætisvottur

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins færður þakklætisvotturSlökkviliði höfuðborgarsvæðisins var nýlega færður þakklætisvottur frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands fyrir samstarfið á Smáþjóðaleikunum sem fóru fram í júní sl. Slökkviliðið lánaði mannskap, búnað og þekkingu við undirbúning leikanna sem og á meðan á leikunum stóð.
Nánar ...
20.08.2015

Göngum í skólann 9. september - 7. október

Göngum í skólann fer fram í níunda sinn dagana 9. september til 7. október 2015. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.
Nánar ...