Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

17.04.2021

Benedikt Jónsson kjörinn formaður UÍA

Benedikt Jónsson kjörinn formaður UÍAUngmenna- og íþróttasamband Austurlands hélt ársþing sitt fyrr í dag. Þingið var fjarþing vegna takmarkana á samkomum. Góð þátttaka var á þinginu og var þingstjórn í öruggum höndum Stefáns Boga Sveinssonar, fyrrum formanns UÍA.
Nánar ...
15.04.2021

75. Íþróttaþing ÍSÍ verður fjarþing

75. Íþróttaþing ÍSÍ verður fjarþingÍ dag, 15. apríl, voru kynntar verulegar tilslakanir er varða samkomur í landinu. Íþróttaþing ÍSÍ fellur þó utan þeirra tilslakana enda eiga um 240 þingfulltrúar seturétt á þinginu, sem verður haldið 7. maí nk. Með vísan í þær aðstæður sem uppi eru í heiminum og þær reglur sem gilda um takmarkanir á samkomum sem settar eru yfir landsmenn af stjórnvöldum þá hefur framkvæmdastjórn ÍSÍ ákveðið að þingið verði fjarþing í stað hefðbundins þings.
Nánar ...
14.04.2021

TOKYO 2020 – Fyrir jörðina og fólkið

TOKYO 2020 – Fyrir jörðina og fólkið100 dagar eru þangað til Ólympíuleikarnir í Tókýó verða settir, en þeir eru hugsaðir sem hátíð mannkyns, hugrekkis og seiglu. Leikarnir sem hafa vissulega orðið fyrir miklum áhrifum af COVID-19 munu sameina íþróttafólk frá öllum heimshornum og hjálpa til við að sameina heiminn í einum stórum viðburði.
Nánar ...
14.04.2021

Verulegar tilslakanir á íþróttastarfi á ný!

Verulegar tilslakanir á íþróttastarfi á ný!Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ: „Íþróttahreyfingunni er mjög létt við þessar tilslakanir enda öllum mikið í mun að koma íþróttastarfinu aftur af stað af fullum krafti. Það var afar erfitt að fá þetta bakslag í starfið þegar allt var komið á fullt eftir erfiðan fyrri part veturs en nú erum við vonandi komin fyrir vind. Maður leyfir sér að vera bjartsýnn á framhaldið þó að kórónuveiran sé ólíkindatól. Það hefur verið unnið baki brotnu undanfarnar vikur að úrlausnum, af hálfu yfirvalda og forystu íþróttahreyfingarinnar og við erum afskaplega ánægð með að fá þessar tilslakanir varðandi íþróttirnar. Við erum þakklát mennta- og menningarmálaráðherra fyrir aðkomu hennar að þessum lausnum og samstarfið við hreyfinguna. Það er ekki nema vika í sumardaginn fyrsta og varla hægt að hugsa sé betri sumargjöf en að hefja aftur æfingar og keppni í íþróttum í landinu.“
Nánar ...
13.04.2021

Boðaðar tilslakanir varðandi íþróttastarf

Boðaðar tilslakanir varðandi íþróttastarfÞað stefnir í bjartari tíma varðandi íþróttastarfið í landinu, samkvæmt frétt frá heilbrigðisráðuneytinu, sjá hér: Í fréttinni er að finna minnisblað frá sóttvarnalækni þar sem fram kemur m.a.:
Nánar ...
13.04.2021

Guðmundur endurkjörinn formaður HSÍ

Guðmundur endurkjörinn formaður HSÍ​64. ársþing Handknattleikssambands Íslands fór fram í gær, 12.apríl í gegnum fjarfundarbúnað sökum samkomutakmarkanna. Yfir 70 einstaklingar úr handknattleikshreyfingunni tóku þátt í fundinum. Velta HSÍ á árinu var rúmlega 249 milljónir kr. sem er um 50 milljónum kr. lægri frá árinu á undan.
Nánar ...
06.04.2021

Alþjóðlegur dagur íþrótta i þágu þróunar og friðar

Alþjóðlegur dagur íþrótta i þágu þróunar og friðarAlþjóðlegur dagur íþrótta í þágu þróunar og friðar er haldinn hátíðlegur í dag. Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) útnefndi daginn sem slíkan á ársþingi sínu árið 2013 til þess að leggja áherslu á mikilvægi íþrótta í því að stuðla að þróun og friði í heiminum. Árlega fagna fjölmörg samtök og aðilar deginum með margvíslegum hætti.
Nánar ...
06.04.2021

125 ár frá setningu fyrstu nútíma Ólympíuleikanna

125 ár frá setningu fyrstu nútíma ÓlympíuleikannaÍ dag, 6. apríl 2021, eru 125 ár frá setningu fyrstu nútíma Ólympíuleikanna, en þeir fóru fram í Aþenu í Grikklandi dagana 6. til 15. apríl 1896. Á leikunum 1896 var keppt í 43 keppnisgreinum innan níu íþróttagreina og kepptu 241 karlmenn frá 14 löndum á leikunum.
Nánar ...