Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

19

16.03.2017

Ársþing USVH

Ársþing USVHUngmennasamband Vestur-Húnvetninga hélt 76. ársþing sitt í félagsheimilinu Víðihlíð miðvikudaginn 15. mars síðastliðinn. Alls voru 28 þingfulltrúar mættir á þingið sem er um 77% mæting. Þingforseti var Júlíus Guðni Antonsson og stýrði hann þinginu af röggsemi.
Nánar ...
16.03.2017

Ráðstefna um heilsueflingu eldri aldurshópa í dag

Ráðstefna um heilsueflingu eldri aldurshópa í dagÍ dag, fimmtudaginn 16. mars, stendur ÍSÍ í samstarfi við Öldrunarráð Íslands, Landssamband eldri borgara, Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni og Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra fyrir ráðstefnu um málefni eldri aldurshópa í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa.
Nánar ...
15.03.2017

Ársþing UMSS

Ársþing UMSSUngmennasamband Skagafjarðar hélt 97. ársþing sitt í Ljósheimum í Skagafirði í gær, þann 14. mars. Ágætis mæting var á þingið og voru alls 36 þingfulltrúar mættir. 11 tillögur lágu fyrir þinginu sem allar voru samþykktar auk einnar til viðbótar sem til varð í störfum nefnda. Þingforsetinn Steinunn Rósa Guðmundsdóttir stýrði þinginu af röggsemi. Þórhildur Sylvía Magnúsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu og var Arnrún Halla Arnórsdóttir kjörin formaður í hennar stað.
Nánar ...
15.03.2017

Árni Björn sæmdur Silfurmerki ÍSÍ

Árni Björn sæmdur Silfurmerki ÍSÍÁrsþing Lyftingasambands Íslands var haldið laugardaginn 11.mars í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ásgeir Bjarnason var endurkjörinn formaður sambandsins. Árni Björn Kristjánsson fráfarandi varaformaður LSÍ var sæmdur Silfurmerki ÍSÍ á ársþinginu fyrir góð störf í þágu ólympískra lyftinga.
Nánar ...
15.03.2017

Jason endurkjörinn formaður BLÍ

Jason endurkjörinn formaður BLÍÁrsþing Blaksambands Íslands fór fram 10. mars síðastliðinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Jason Ívarsson var endurkjörinn formaður sambandsins. Í stjórn voru kjörnir til tveggja ára þeir Árni Jón Eggertsson og Andri Hnikarr Jónsson og í varastjórn voru kjörin til eins árs þau Svandís Þorsteinsdóttir, Sigurbjörn Árni Arngrímsson og Steinn Einarsson.
Nánar ...
14.03.2017

Ráðstefnan Að stjórna íþróttafélagi færð í stærri sal

Ráðstefnan Að stjórna íþróttafélagi færð í stærri salVegna mikillar skráningar á ráðstefnuna „Að stjórna íþróttafélagi - Ekkert mál?“ hefur ráðstefnan verið færð í stærri sal innan Háskóla Íslands, úr Odda í Öskju. Ráðstefnan hefur það að markmiði að efla samstarf háskólasamfélagsins og þeirra aðila sem koma því starfi sem fram fer innan íþróttafélaga og fá fram umræðu um ýmis málefni og álitamál sem varða stjórnun og rekstur þeirra.​
Nánar ...
14.03.2017

Heilsuefling eldri aldurshópa

Heilsuefling eldri aldurshópaFimmtudaginn 16. mars nk. stendur ÍSÍ fyrir ráðstefnu um málefni eldri aldurshópa í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Aldrei of seint – Heilsuefling eldri aldurshópa.​
Nánar ...
14.03.2017

Heiðranir á héraðsþingi HSK

Heiðranir á héraðsþingi HSKÁ héraðsþingi HSK sem haldið var á Hótel Örk í Hveragerði sl. laugardag var Guðríður Aadnegard, formaður HSK, sæmd gullmerki ÍSÍ. Silfurmerki ÍSÍ hlutu Baldur Gauti Tryggvason Umf. Þjótanda og Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni.
Nánar ...
14.03.2017

Héraðsþing HSK haldið í Hveragerði í 19. sinn

Héraðsþing HSK haldið í Hveragerði í 19. sinnHéraðsþing HSK var haldið á Hótel Örk sl. laugardag. Rúmlega 100 manns mættu. Á þinginu var lögð fram vegleg ársskýrsla um störf sambandsins á liðnu ári, ásamt því að í skýrslunni eru stutt yfirlit um störf aðildarfélaga sambandsins.​
Nánar ...
13.03.2017

Ársþing USAH

Ársþing USAHUngmennasamband Austur-Húnvetninga hélt ársþing sitt sunnudaginn 12. mars síðastliðinn á Húnavöllum. Þetta var 100. ársþing USAH og af því tilefni bauð sambandið upp á glæsilega afmælisköku. USAH er reyndar aðeins eldra vegna þess að nokkur ársþing féllu niður á sínum tíma af ýmsum ástæðum. Góð mæting var á þingið og voru alls 36 þingfulltrúar mættir. Þingið gekk vel fyrir sig og voru fjölmargar tillögur samþykktar á þinginu. Nefna má stefnumótun sem USAH hafði unnið að um talsverðan tíma.
Nánar ...
10.03.2017

Ársþing UMSE

Ársþing UMSEUngmennasamband Eyjafjarðar (UMSE) hélt 96. ársþing sitt í Árskógi fimmtudaginn 9. mars sl. Þingið var vel sótt þar sem 35 þingfulltrúar af 45 sóttu þingið. Þingforsetarnir Marinó Þorsteinsson og Sveinn Jónsson stýrðu þinginu af röggsemi. Fjöldi tillagna lá fyrir þinginu og voru margar þeirra tengdar umsókn UMSE til ÍSÍ um viðurkenningu sem fyrirmyndarhérað. Tillögurnar voru allar samþykktar enda mikil og fagleg vinna að baki sem þingnefndir áttu frekar auðvelt með að samþykkja. Reikningar sambandsins litu mjög vel út og ljóst að vel er haldið á spöðum í öllum rekstri.
Nánar ...