Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

07.05.2024 - 07.05.2024

Ársþing HSV 2024

Ársþing Héraðssambands Vestfirðinga (HSV)...
25

25.11.2013

Patrick Hickey áfram forseti EOC

Ársþing EOC - Evrópusambands ólympíunefnda fór fram í Róm dagana 22.-23. nóvember sl. Patrick Hickey var endurkjörinn forseti sambandsins, Janez Kocijancic sem varaforseti, Raffaele Pagnozzi sem framkvæmdastjóri og Kikis Lazarides sem gjaldkeri.
Nánar ...
22.11.2013

Ólafur E. Rafnsson sæmdur æðstu viðurkenningu European Olympic Committees

Ólafur E. Rafnsson var í dag heiðraður með æðstu viðurkenningu European Olympic Committiees (EOC), Order Of Merit Award, á ársþingi samtakanna sem fram fer í Róm. Eiginkona Ólafs heitins, Gerður Guðjónsdóttir, ásamt börnum þeirra Auði, Sigurði og Sigrúnu, tók á móti viðurkenningunni frá Patrick Hickey forseta EOC.
Nánar ...
20.11.2013

Heimsráðstefna WADA

Alþjóða lyfjaeftirlitið (WADA) stóð fyrir heimsráðstefnu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku dagana 12.-15. nóvember s.l.
Nánar ...
20.11.2013

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2013 rennur út á miðnætti föstudaginn 10. janúar 2014. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sent inn umsóknir í sjóðinn.
Nánar ...
11.11.2013

Jákvæð áhrif íþróttaiðkunar á líðan ungmenna

Frá árinu 1992 hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið stuðlað að því að gerðar hafa verið faglegar, samanburðarhæfar rannsóknir á högum, líðan og aðstæðum barna og ungmenna hér á landi undir heitinu Ungt fólk. Hefur Ísland verið í fararbroddi þróunar á rannsóknum af þessu tagi mörg undanfarin ár.
Nánar ...
08.11.2013

8. nóvember - Dagur gegn einelti

Dagurinn í dag, 8. nóvember, er líkt og síðustu ár helgaður baráttunni gegn einelti. Dagurinn er nú haldinn hátíðlegur í þriðja sinn en markmiðið með deginum er að vekja sérstaka athygli á málefninun og hversu alvarlegt einelti er. Í ár er sjónum beint að skólasamfélaginu og þá sérstaklega framhaldsskólum.
Nánar ...
06.11.2013

Þjálfarastyrkjum úthlutað úr Verkefnasjóði ÍSÍ

Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ hefur tekið ákvörðun um hvaða þjálfarar hljóta þjálfarastyrk árið 2013. Tæplega 60 umsækjendur voru um þá styrki sem voru í boði og komu umsækjendur úr mörgum ólíkum greinum íþrótta og víða að af landinu.
Nánar ...
06.11.2013

Sigurður Valur endurkjörinn formaður BTÍ

Sigurður Valur endurkjörinn formaður BTÍÁrsþing Borðtennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 28. október sl. Sigurður Valur Sverrisson var endurkjörinn formaður sambandsins en með honum í stjórn voru kjörin þeir Ingimar Ingimarsson, Hlöðver Hlöðversson, Pétur Tómasson og Tryggvi Áki Guðmundsson.
Nánar ...
05.11.2013

Sigfús Ólafur Helgason fékk Gullmerki ÍSÍ

Hestamannafélagið Léttir á Akureyri hélt upp á 85 ára afmæli sitt laugardaginn 2. nóvember síðastliðinn. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar jafnt ungum sem öldnum á löngum laugardegi félagsins sem var þétt setinn dagskrár frá morgni til kvölds. Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri afhenti Andreu Þorvaldsdóttur áletraðan platta að gjöf frá ÍSÍ auk blómvandar.
Nánar ...
30.10.2013

100 dagar í Vetrarólympíuleika

100 dagar í VetrarólympíuleikaÍ dag 30. október 2013 eru 100 dagar í að Vetrarólympíuleikarnir í Sochi verða settir. Það má því með réttu segja að lokaundirbúningur sé hafinn, en þessa dagana eru íþróttamenn að vinna að því að ná tilsettum árangri til að tryggja sér keppnisrétt á leikunum.
Nánar ...
29.10.2013

Framhaldsskólakeppni Lífshlaupsins

Framhaldsskólakeppni LífshlaupsinsFramhaldsskólakeppni Lífshlaupsins fór fram dagana 3. - 16. október í annað sinn. Verðlaunaafhending var síðastliðinn föstudag eða 25. október. Hafsteinn Pálsson, formaður almeningsíþróttasviðs og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, nefndarmaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ afhentu verðlaunin.
Nánar ...