Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

14.05.2019

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ þann 15. júní

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ þann 15. júníSjóvá Kvenna­hlaup ÍSÍ fer fram 15. júní 2019. Hlaupið verður á yfir 80 stöðum á land­inu en þetta er í þrítug­asta skiptið sem Kvenna­hlaupið er haldið. Listi yfir hlaup­astaði 2019 verður birtur þegar nær dregur.
Nánar ...
13.05.2019

Grænir Smáþjóðaleikar

Grænir SmáþjóðaleikarNæstu Smáþjóðaleikar fara fram í Svartfjallalandi 27. maí til 1. júní 2019. Í dag eru tvær vikur til leika. Slagorð leikanna að þessu sinni er “Be fair by nature”, en Svartfjallaland er hluti af áætluninni „Grænir leikar“ sem styrkt er af Ólympíusamhjálpinni, þar sem markmiðið er að koma á fót sjálfbærum íþróttaviðburði. Áætlunin samanstendur af því að setja fram ákveðna umhverfisstaðla sem tengjast skipulagningu íþróttaviðburða ásamt menntun og kynningu á umhverfismálum.
Nánar ...
13.05.2019

Hádegisfundur - Harðgerðir hugar

Hádegisfundur - Harðgerðir hugarMánudaginn 13. maí mun einn fremsti og þekktasti íþróttasálfræðingur heims og höfundur kennslubókarinnar Foundations of Sport and Exercise Psychology halda fyrirlestur í Háskólanum í Reykjavík. Fyrirlesturinn verður í stofu M101 og stendur frá kl.12-13. Fyrirlesturinn er öllum opinn og ekki er þörf á skráningu.
Nánar ...
08.05.2019

Rafleikir – liðsfélagi eða andstæðingur?

Rafleikir – liðsfélagi eða andstæðingur?Athygli íþróttahreyfingarinnar hefur beinst að rafleikjum nú nýverið, ekki síst í kjölfar frétta af því að stofna eigi deildir um slíka leiki hjá nokkrum íþróttafélögum innan ÍSÍ. Forseti ÍSÍ fjallaði um málið í ávarpi sínu á 74. Íþróttaþingi ÍSÍ sem fram fór dagana 3.-4. maí sl.
Nánar ...
08.05.2019

Hjólað í vinnuna sett í morgun

Hjólað í vinnuna sett í morgunHjólað í vinnuna var sett í sautjánda sinn í morgun í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þátttakendum var boðið að hjóla við og þiggja ljúffengt bakkelsi. Hafsteinn Pálsson, formaður Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, fluttu stutt og hressileg hvatningarávörp. Senunni stal þó Gyða Sól, en hún lagði línurnar fyrir hjólreiðafólk. Mælti hún sérstaklega með því að nota hjálm, vera á góðum breiðum dekkjum og hjóla í rétta átt. Að ávörpunum loknum hjóluðu gestir og þátttakendur verkefnið formlega af stað.
Nánar ...
07.05.2019

Áhugaverður hádegisfyrirlestur um næringarfræði og heilaskaða í íþróttum

Áhugaverður hádegisfyrirlestur um næringarfræði og heilaskaða í íþróttumNæstkomandi miðvikudag 8. maí mun Dr. Kevin Tipton prófessor í íþróttanæringafræði við Íþróttaháskólann í Durham halda fyrirlestur um næringu og heilahristing (forvarnir og sem aðstoð við bata) sem ber heitið “You know nothing Jon Snow: Nutrition for prevention and treatment of sport-related brain injuries” . Fyrirlesturinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu M104 og hefst kl. 12.
Nánar ...
07.05.2019

Ertu búin að skrá þig? Hjólað í vinnuna hefst á morgun

Ertu búin að skrá þig? Hjólað í vinnuna hefst á morgunÁ morgun, miðvikudaginn 8. maí, hefst Hjólað í vinnuna í sautjánda sinn. Setningarhátíðin fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem allir eru velkomnir að hjóla við kl.8:30, þiggja bakkelsi, hlýða á nokkur hressileg hvatningarávörp og hjóla verkefnið formlega af stað. ÍSÍ hvetur fólk til að tala við samstarfsfélagana, mynda lið og skrá sig til leiks. Það eru skráningarleikir í gangi allan tímann, frá 8. - 28. maí, og ýmsir flottir vinningar í boði fyrir alla þá sem eru skráðir og með skráðar ferðir.
Nánar ...
07.05.2019

Hegðunarviðmið og siðareglur ÍSÍ

Hegðunarviðmið og siðareglur ÍSÍFramkvæmdastjórn Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands hefur samþykkt hegðunarviðmið sem hafa verið í endurskoðun hjá Þróunar- og fræðslusviði ÍSÍ. Hegðunarviðmiðin eru stuðningsskjal við siðareglur ÍSÍ, til leiðbeiningar fyrir alla aðila innan íþróttahreyfingarinnar.
Nánar ...
04.05.2019

Ný framkvæmdastjórn ÍSÍ

Ný framkvæmdastjórn ÍSÍ74. Íþróttaþingi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands lauk nú fyrir nokkrum mínútum í Gullhömrum í Grafarholti. Þingforsetar voru þau Guðrún Inga Sívertsen og Viðar Helgason og stýrðu þau þinginu af mikilli röggsemi.
Nánar ...
04.05.2019

ÍSÍ kolefnisjafnar alla starfsemi sína

ÍSÍ kolefnisjafnar alla starfsemi sínaStarfsemi Íþrótta- og Ólympíusambandsins fylgja mikil ferðalög. Sérstaklega er það vegna þátttöku í ýmsum leikum á vegum Ólympíuhreyfingarinnar en 12 ólympísk verkefni fara fram á hverri fjögurra ára Ólympíuöðu. Þegar mest er þá sendir ÍSÍ um 200 þátttakendur og aðstoðarfólk á einstakan viðburð, þ.e. Smáþjóðaleikarnir.
Nánar ...